Fαnney <3
05.11.2007 21:45:51 / fanneyf

Myndir

 

 

http://123.is/fanneyf

Allar myndir fara framvegis þangað !


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 17:31:54 / fanneyf

Í den..

Ef að þetta tvennt fær mann ekki til að langa að vera ungur aftur þá veit ég ekki hvað !

  • http://panama.is/index.php?action=folkid&id=9826

 


  • Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]
  • Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...
  • Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu
  • Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...
  • Þegar lögga og bófi var daglegt brauð
  • Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir
  • Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...
  • Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..
  • Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir
  • Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos
  • Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk
  • Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl
  • Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...
  • Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..
  • Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara
  • Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...
  • Þú áttir tölvugæludýr
  • ...eða Furbie
  • Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið
  • Og Windows '95 var best
  • Michael Jordan var aðal hetjan..
  • Kærleiksbirnirnir
  • Þú safnaðir lukkutröllum
  • Og áttir vasadiskó
  • Þú kannt Macarena dansinn utanað
  • Þú veist af hverju 23 er kúl tala
  • Áður en að Myspace varð vinsælt,
  • Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..
  • Áður en ipod kom til sögunnar
  • Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,
  • Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið
  • Og þú leigðir spólur, ekki dvd,
  • Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti
  • Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu
  • Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast
  • Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 23:38:00 / fanneyf

Benidorm !

 
 
Jæja elskurnar mínar,
núna er loksins komið að því!

Ég er stungin af til Benidorm!

Sjáumst hress og vel tönuð eftir 2 vikur ;)
P.s. ég verð með símann minn ef þið viljið ná e-ð í mig !


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 17:49:35 / fanneyf

09.07.'07

 

Nýjar myndir frá Goslokunum ! 

P.s. 

24 dagar í Húkkarann + Þjóðhátíð!




31 dagur í Benidorm !


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 20:45:10 / fanneyf

02.04.2007

 

Ég er hætt með þetta blogg í bili og ætla bara að halda mig við bloggið hjá okkur stelpunum á --> http://blog.central.is/the-smartis

 

Kem samt örugglega með comeback hingað sometime

Thank you for your time

Fanney <3

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 00:39:41 / fanneyf

21.03.2007

Hola chica/chico!

Hver er sammála mér að skólinn sé að drepa hann/hana úr leiðindum og hann/hún geti ekki beðið eftir páskafríinu?
Ég er allavegna að rotna, eins og sést á mætingunni minni, og ég get ekki beðið eftir páskafríinu! Það er allavegna nóg að gerast framundan hjá mér, eins gott þetta verði bara fljótt að líða og sumarið verði komið áður en ég veit af ;)

Anyway, á morgun er Hlaupið gríðarlega! (Amazing race), það eru einhverjir Svíar í heimsókn og það var ákveðið að gera e-ð svona fun fyrir okkur. Guði sé lof að það sé ekki ennþá frost og snjór því þá væri þetta ekki alveg það skemmtilegasta sem hægt væri að gera kl 9 um morgun!
Svo um helgina er hið umtalaða Hippaball, spurning hvort maður skelli sér.. Er að vinna til 22 og svo á ég að mæta 11 á sunnudagsmorguninn nema Sara ætlar kannski að vera elska og taka þessa morgunvakt fyrir mig, þá verður sko djammað annars verður maður bara bílandi ;)
Helgina eftir það er FÍV-cup, Konu og Karlakvöld og svo þetta blessaða Froðudiskó, persónulega væri ég meira til í ball heldur en þetta froðudisko.. sawwy :|

Og svo er páskafríið bara komið og þá verður sko nóg að gera! Niko-afmæli?, afmæli hjá Jenna og 5bo, ball í höllinni?, ég og Toggi ætlum að taka oldschool djamm á þetta..
Ef ég verð ekki full í páskafríinu þá verð ég þunn ;) nei ég segi bara svona, páskafríið verður tekið í vinnu, lærdóm því Raggi setti lokaprófið í Sögu strax eftir páskafrí! og að sjálfsögðu verður tekið smáááá létt djamm á þetta ;)

Síðan er ég búin að vera breyta smá og bæta, er byrjuð að vera dugleg með myndavélina.. Var svo að taka til í bloggarar og crew, er 150% á því að ég hafi gleymt einhverjum svaka merkilegum :( en þá redda ég því bara :D

Þar sem þetta blogg er orðið svoooo lang og um ekki shit! þá held ég hætti bara núna..

Beilsa y'all 8)


<3 :**
(já fokk hvað ég er emo ;))


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 16:19:18 / fanneyf

15.03.2007

 

Jæja loksins gef ég mér tíma til þess að blogga um árshátíðina og opnu dagana og allt það heila stöff..

Á fimmtudeginum skelltum við stelpurnar okkur á bjórkvöld á Drífanda og ég get ekki sagt annað en maður hafi skemmt sér alveg konunglega vel! Það var lítið drukkið en samt fylgdi því mikil ölvun :S
Á föstudeginum var bara sofið út eða alveg til hálf 11, þá skellti ég mér uppí skóla og ég, 5bo og Sigrún H fórum að telja atkvæðin útaf kosningunni uppí skóla. Ekkert svakalega auðvelt að fela fyrir Söru að hún hafi unnið, þótt það virki sem svindl þá vann Niko kosninguna og Jói og Rúnar voru hníííífjafnir :) Svo var bara allan daginn verið að klára redda öllu og fara með allt niðrí Týsheimili svo hægt væri að byrja sem fyrst á að skreyta. Um kvöldið var svo mætt niðrí Týsheimili og við breyttum forljótum íþróttasal í stórglæsilega árshátíð ! Get ekki annað sagt en þetta hafi heppnast vel miðað við svartsýnina í mér varðandi þemað.
Ég yfirgaf svæðið um miðnætti alveg búin á því og var alveg að sofna þarna. Þannig ég skellti mér bara heim til Hafliða og man ekki einu sinni eftir að hafa lagst uppí rúm ég var svo þreytt.
Jæja svo var komið að laugardeginum, hversu spenntur var maður orðinn! Ég tók því bara rólega, svaf til hádegis og skellti mér svo í sturtu og svo fórum bara ég, Einar Kr og Hafliða smá ísrúnt. Um 4 leytið skellti ég mér í sturtu og hentist svo beint heim til Ragga og Sigrúnar og þar var byrjað að sturta í sig, ég var eiginlega bara komin í þann fíling að djúsa þar og sleppa þessari árshátíð það var svo mikið fjör hjá okkur. En við skelltum okkur svo á árshátíðina og ég er ekki frá því að þetta hafi verið skemmtilegasta árshátíð sem ég hef farið á! Mikil ölvun, mikil skemmtun, góður matur, frábært fólk ;)
Að sjálfsögðu eftir svona góða skemmtun þá fór slúðrið af stað og drama drama drama..

Þar sem þetta blogg er orðið nokkur kílometrar þá ætla ég að hætta núna og minna á myndirnar sem ég tók. Árshátíðamyndirnar eru <- til hliðar en myndirnar af bjórkvöldinu eru hérna neðar á síðunni.

Beilsa 8)

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 19:52:49 / fanneyf

12.03.2007

 

 

Jæja myndirnar af árshátíðinni eru komnar hérna til hliðar, hendi svo inn bloggi á morgun eða hinn..

 

Enjoy ! :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 00:41:57 / fanneyf

10.03.2007

 

 

 

Nýjar myndir af Bjórkvöldi FÍV á Drífanda fimmtudaginn 8. mars ! :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 18:14:55 / fanneyf

04.03. '07

Þar sem mér leiðist meira en allt þá ætla ég bara að skella einu bloggi hérna inn..

Ég er búin að vera ein heima núna í 18 daga og það eru 4 dagar eftir og ég get sko sagt það að ég er komin með massíft mikið ógeð á að vera ein heima ! Það er svo sem í lagi um helgar en í meira en 3 vikur, come on !
En já mamma og pabbi skelltu sér til Tenerife surprise surprise þar sem þau fara aaaldrei til útlanda þá urðu þau náttúrulega að fara núna, já ég er í röflustuði! :)
Ástæðan fyrir að ég fékk ekki var að fara með var sú að ég er að fara út í ÁGÚST! sem er náttúrulega roooooosalega stutt í hehe.
Heyrðu já ég breytti ferðinni minni ég er að fara til Benidorm með Hafliða og Niko og þeim sem verður örugglega bara snilld því ég hef Ágústu mína líka þarna 8)

Anyway.. seinustu helgi þá hélt ég smá staffapartý hérna heima, bauð stelpunum heim og eldaði þennan dýrindis pastarétt a la Fanney, svo var bara drukkið og farið á trúnó og svo var að sjálfsögðu skellt sér í Singstar !
Myndir af því eru hérna neðst á síðunni ;)

Og svo næstu helgi er árshátíð FÍV og þar sem þemað er ÖMURLEGT þá er voða lítið hægt að gera flott við salinn en við gerum okkar besta :) mamma verður reyndar komin heim þá en ég fæ örugglega að blikka hana um að leyfa okkur vera heima fyrir árshátíðina og sturta í okkur ;)

Jæja ég nenni ekki meira..
og koma svo setið met í commentun, einn tveir og byrja!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 21:41:25 / fanneyf

20.02.2007

Þar sem fartölvan mín bilaði þá fór ég í gömlu góðu heimilistölvuna og
þar fann ég allskonar gamlar og skemmtilegar myndir, ákvað að deila þeim með ykkur þannig þær eru hérna neðst á síðunni.. Ykkur öllum til mikillar gleði býst ég við ;)

Og einnig fann ég þetta hérna í tölvunni !

[17:57:50] <tAnJa^T> hey áttiru einu sinni silfurlitaða sko´?
[17:57:58] <fannsla-> ha!
[17:58:12] <tAnJa^T> já
[17:58:14] <tAnJa^T> hehe
[17:58:19] <tAnJa^T> áttiru þannig?
[17:58:27] <fannsla-> hvað meinarru..
[17:58:39] <tAnJa^T> Já áttiru einu sinni silfurlitaða sko ?
[17:58:44] <tAnJa^T> hefuru ekki farið til kanarý?
[17:59:07] <fannsla-> jú
[17:59:17] <tAnJa^T> áttiru ekki silfurlitaða sko þay? Þ:)
[17:59:27] <fannsla-> nei held ekki
[17:59:44] <tAnJa^T> ó
[17:59:54] <tAnJa^T> =)
[17:59:56] <tAnJa^T> hehe
[18:00:16] <fannsla-> af hverju heldurru það hehe =)
[18:00:45] <tAnJa^T> Ég bara man að ég hitti þig og systur þín útá kanary og þú varst í silfurlituðum skom :)
[18:00:52] <tAnJa^T> en hey brb restarta ;)
[18:00:57] <fannsla-> ok
[18:01:33] <fannsla-> jú´ég átti
[18:01:40] <tAnJa^T> er það?

Enjoy !


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 14:04:35 / fanneyf

25.01.2007

Ég giska á að það sé komin tími á blogg.. ekki rétt hjá mér?

Janúar

  • Skóli
  • Vinna
  • Íslensk leti
  • 2 djömm enn sem komið er
  • DjammIÐ á laugard þegar Olga ætlar að halda uppá 19 ára afmælið sitt
    • Giska á að toxic komi þar við sögu
    • Magic og Burn líka
    • Geisladiskastandar og ljósaperur
    • Spice Girls ;)
    • Og djamm hjá okkur stelpunum eins og í "gamla" daga nema Olga ætlar að halda áfram að standa sig eins og hetja :*
  • Ég og Halla pöntuðum okkur ferð til Costa del Sol og við förum út þann 8 ágúst, miðvikud. eftir þjóðhátíð, við vissum að Andrea og Alma ætluðu og Benoný, Emmi og co en svo ákvað stærsti vinahópurinn á eyjunni að joina líka þannig það verða brilljón eyjamenn þarna út.. Geri maður ekki bara gott úr því? :)
  • Litla stelpan hjá Fjólu og Magga fékk nafnið Eva og á að skíra hana núna í febrúar 
  • Mikael varð 4 ára í gær og varð official stóri bróðir, hann neitaði svo að verða stóri bróðir fyrr en hann varð 4 ára !
  • Magga frænka á afmæli í dag, Lilja hans Halldórs bróðir á morgun, pabbi gamli á laugard og Olga á mánud.. (hver tímir að lána mér pening fyrir afmælisgjöfum?)
  • Frí í kvöld, einhver game í að veita mér félagsskap? :D
  • Froðudiskó í febrúar, er eitthvað til í því..? Fun að fara á froðudiskó og enda með blöðrubólgu, kvef, hálsbólgu og lungnabólgu. Er ekki aðeins sniðugra að gera þetta um sumartíma fólk ?
  • HM í handbolta á fullu og ég af öllu fólki er að missa mig yfir því! 8|

Jæja ég nenni þessu ekki lengur.. spurning að hafa bara svona mánaðarblogg þar sem ég blogga bara á mánaðarfresti :P

Later y'all !

Varð að hafa eina af afmælisbarninu hehe ;*

Smá nýtt:

  • Heyrst hefur að ég sé komin útúr skápnum..
  • Heyrst hefur að ég hafi farið heim með Gauta eftir ballið á föstud..
  • Hvernig virkar það?

» 15 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 23:19:10 / fanneyf

10.01.'07

Yub það er komin lítil prinsessa í heimin ! :D 


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 18:08:56 / fanneyf

Jól 2006

Gleðileg jól !


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 22:15:46 / fanneyf

Framundan..

  • Jólafrí
  • Djamm
  • Eyjar um helgina 14-18 (löng fríhelgi)
  • Vinna seinustu vaktirnar í Vero Moda :(
  • Jól :D
  • Djamm
  • Flytja til Eyja
  • Halla kemur með! :D:D:D
  • Áramót
  • Djamm
  • Skóli
  • Þrettándinn
  • Djamm
  • Lifa ekta Eyja-lífi.. Rúnta, taka spólu, læra og vinna (ef ég finn mér vinnu eftir áramót)

Sjáumst um helgina SÓÓÓÓÓTÖLVUÐ 8)


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6